vestmannaeyjabær

Samgöngur og traust!

08.07.2020

Traustar og öruggar samgöngur eru lykilatriði í rekstri nútíma samfélags. Vestmannaeyjar hafa lengi búið við bresti og vantraust á samgöngum. Oftast eru það náttúruöflin sem ráða för, en stundum eru það mannanna verk!

Ferðaþjónustan í landinu rær lífróður í fordæmalausu umhverfi og baráttan aldrei verið harðari. Ferðamálasamtök Vestmannaeyja hafa í samstarfi við Vestmannaeyjabæ hrint af stað kostnaðarsömu markaðsátaki, markmiðið að verja störf bæjarbúa og fyrirtæki áföllum. Sem betur fer virðist það vera að takast.

Í ljósi aðstæðna verður það að teljast með miklum ólíkindum að á þessum tímum birtist vinnustöðvun á Herjólfi, stærsta ferðaþjónustuaðila í Vestmannaeyjum. Samgöngur lokast. Traust ferðamanna  á öryggi samgangna milli lands og Eyja bregst í júlí!

Nú þurfa deiluaðilar að beita öllum öðrum aðferðum en þeim sem draga úr trausti á samgöngum við Vestmannaeyjar. Fórnarkostnaðurinn gæti orðið gríðarlegur.

Nú er rétt og nauðsynlegt að skoða stóru myndina!

Ferðamálasamtök Vestmannaeyja    

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is