Það var í maí 2020 sem að ég finn ber í öðru brjósti og óska þá strax eftir að fá tíma í myndatöku sem að tekur um 3-4 vikur en mikið álag var á öllu heilbrigðiskerfinu á þessum tíma vegna Covid. Ég fæ svo tíma á laugardegi í fyrstu viku í sumarfríi sem verður svo til þess að það er hringt í mig á Húsavík þar sem ég var ásamt fjölskyldunni og við boðuð á fund eftir viku. Þá um leið, þó að hafa ekki fengið staðfestingu í símtalinu, vissum við að um krabbamein væri að ræða. Fundurinn staðfesti svo þetta allt saman en um leið var okkur einnig tjáð að þetta væri hægvaxandi æxli sem yrði bara tekið með léttum fleygskurði og svo í framhaldi yrði hugsanlega einhverjir geislar. Það var svo aldeilis ekki þannig.
Ég var send í uppskurð í ágúst þar sem allt vinstra brjóstið var tekið ásamt eitlum þar sem þetta litla æxli var orðið mun stærra og mun hraðvaxandi heldur en okkur hafði verið kynnt áður. Krabbamein fannst í fjórum eitlum en þau enduðu á að taka mun fleiri, af því að það fannst í þessum fjórum. Þarna tekur svo við mun stærra verkefni en við vorum búin að undirbúa okkur undir. Í kjölfarið á þessu er mér tjáð að ég þurfi lyfja og geislameðferð. Þó að upphaflega biðin, eftir myndatöku og svo staðfestingu, hafði liðið eins og heil eilífð þá var allt ferlið, þegar að hér er komið við sögu, mjög hratt og í raun kom okkur á óvart hvað það var vel haldið utan um allt saman.

Með eitt brjóst og ekkert hár
Í október þetta sama ár fer ég í fyrstu af sex lyfjagjöfunum sem voru gefnar á þriggja vikna fresti í fimm tíma í senn. Lyfin fóru ágætlega í mig til að byrja með en endaði á því að vera algjör skelfing undir lokin. Að mörgu leyti kemur eitt átakamesta mómentið í þessu ferli strax eftir fyrstu lyfjagjöf. Á annarri viku eftir lyfjagjöfina byrjað hárið að fara og ótrúlegt að vera komin þarna með eitt brjóst, en ég grét kannski mest yfir því að missa hárið. Stelpurnar á hárgreiðslustofunni Sjampó voru þó einstaklega faglegar og frábærar þegar að þær tóku á móti mér til að fjarlægja hárið. Það kom mér samt verulega á óvart hvað það fór mér svo bara einstaklega vel að vera stutthærð. Það var þarna sem ég upplifði mig í fyrsta sinn veika en fram að þessu hafði þetta verið frekar bara tekið á hörkunni. Eðlilega voru dagarnir þó mjög misjafnir þegar kom að andlegu hliðinni.

Lægðirnar með okkur í liði
Við vorum einstaklega heppin að veturinn var okkur hagstæður og náðum við öllum sex lyfjameðferðunum í Landeyjahöfn. Ég náði því alltaf að vera komin heim strax eftir lyfjagjöf þannig að ég gat verið lasin heima í stað þess að vera föst í borg óttans. Bæði gat Jói stjórnað sinni vinnu þannig að hann komst alltaf með mér, ásamt því að Guðmundur sonur okkar þurfti ekki að vera mikið að heiman heldur. Þó að vissulega hafi það verið þannig að þegar að ég greindist var öll fjölskyldan með okkur í þessu og allir að reyna allt til að láta mér líða sem best og ná skjótum bata. Til dæmis með því að hjálpa til við pössun eða eins og mamma sem sendi sms alla daga kl 10 á morgnanna til að athuga hvernig ég væri. Stundum hringdi ég til baka eða bara skrifaði það, fór eftir því hvernig ég var. Ég fór m.a. í lyfjagjöf á milli jóla og nýárs sem að gekk upp þrátt fyrir allt jóla- og áramótastúss. Síðast lyfjagjöfin var svo í janúar og var þá farin að fara frekar illa í mig enda ferlið búið að taka mikla orku og þolið á þrotum. Þrátt fyrir að hafa talið mig vera í ágætis formi fyrir þetta ferli þá eru lyfin bara svo mikið eitur að það tekur af manni allan mátt.
Eftir lyfjagjafirnar var svo tekin mánaðarpássa til að safna orku fyrir næsta ferli sem var þriggja vikna geislameðferð þar sem ég fengi geisla á hverjum virkum degi en það lengdist svo fram í fjórðu vikuna útaf jarðskjálfta. Þann tíma dvaldi ég ein í Reykjavík á meðan að Jói og Guðmundur voru heima en ætlunin var að ég kæmi heim um helgar en það datt út fyrstu helgina vegna veðurs en gekk svo upp eftir það. Jói kom svo og var með mér síðustu dagana áður en við fórum heim. Þarna hafði Jói einnig hætt í vinnu sem hann hafði verið í síðustu 13 árin þar á undan til að sinna brugghúsinu og mér alfarið en fyrir þetta ferli hafði hann unnið nánast 200% vinnu á milli þessara tveggja vinnustaða og það einfaldlega gekk ekki lengur upp.

Covid kom sér vel
Covid og krabbamein var fullkomið samband þar sem að ég er mikil félagsvera og vil helst taka þátt í öllu. Verandi nánast ekki með orku til að hreyfa mig hentaði mér mjög vel að öllum var skipað að vera heima. Þannig að mér fannst ég ekki vera að missa af neinu skemmtilegu, engar utanlandsferðir voru nánast leyfðar þannig við segjum stundum að fyrst þetta þurfti að gerast, var þetta trúlega besti tíminn til að fá krabbamein.
Fólkið í kringum mig bar mig á höndum sér og sýndi okkur ómældan stuðning hvort sem það voru systkini okkar eða vinir. Svo bættust bara fleiri vinir í hópinn sem vildi gleðja okkur. Stundum var líka hægt að sjá broslegu hliðina á þessu öllu og var það í einum af samkomutakmörkununum að það máttu einungis tuttugu koma saman og var ég ásamt Maríönnu dóttur minni að fara á kaffihús. Við spurðum hvort það væri sæti fyrir okkur en drengurinn sem var að afgreiða hélt ekki en þá tók ég af mér húfuna og skallinn blasti við þá hljóp drengurinn upp til handa og fóta og reddaði okkur sæti strax. Mér fannst þetta mjög fyndið en dóttir minni ekki eins.
Krabbavörn í Eyjum hjálpaði mikið
Maður heyrir alltaf slæmu hliðarnar af öllu í heilbrigðiskerfinu en mér fannst mér vel tekið á móti mér hvort sem það var hér í Eyjum eða í Reykjavík. Félagsfræðingur hringdi t.a.m. reglulega í mig til að spyrja hvort mig vantaði einhver vottorð og benda mér á leiðir til þess að sækja um hitt og þetta sem ég hefði rétt á. Þó vissulega sé það dýrt að veikjast þá er staðið vel við bakið á manni á öllum stöðum. Krabbavörn í Eyjum hjálpaði mér vel bæði fjárhagslega og svo að geta mætt á þriðjudagsfundi til að fá stuðning frá öðrum sem hefðu gengið í gegnum svipaða hluti.
Nældi sér í Háskólagráðu í leiðinni
Í öllu þessu ferli náði ég auk þess að útskrifast með B.ed. í Leikskólakennaranum. Það nám hjálpaði mér líka oft á fætur, að ég þyrfti að læra og stúlkurnar sem voru með mér í náminu voru tilbúnar til að hittast þegar ég hafði orku og getu til. Í dag er ég komin aftur í vinnu á minn uppáhalds vinnustað sem er leikskólinn Sóli. Þar fæ ég að njóta þess að hitta drengina mína á hverjum degi ásamt mínu frábæra samstarfsfólki. Ég er að klára síðasta Master árið mitt í Háskóla Íslands og hlakka til að fá að taka á móti því skírteini í vor. Ég tók þá ákvörðun að fara í uppbyggingu á brjóstinu og er það ferli sem mun taka mig næstu tvö árin. Það er eitthvað sem ég tilbúin að takast á við og hef rætt það við mína fjölskyldu, þau standa með þeirri ákvörðun en auðvitað verður hver að taka ákvörðun fyrir sig en þetta var mín.
Ljúft að vera ber
Í kjölfarið á þessu höfum við hjá The Brothers Brewery svo fengið allar stúlkurnar í brugghúsinu til þess að koma saman, í annað sinn í ár, til að brugga sérstakan Októberbjór þar sem við reynum að gefa til baka. Ágóði af sölu á þeim bjór í fyrra fór í Krabbavörn hér í Eyjum og verður sama uppi á teningnum í ár. Bjórinn sem við brugguðum í síðasta mánuði verður kynntur á föstudaginn og fer söluverðið af þeim bjór beint til Krabbavarnar í Eyjum allan föstudaginn. Bjórinn er krækiberja skyr sour þar sem stúlkurnar úr brugghúsinu týndu 16 kg af krækiberjum hér í Eyjum til að setja í bjórinn. Bjórinn fengið nafnið Ljúft að vera ber. Við vonumst til að sjá sem flesta á brugghúsinu þegar að við kynnum hann til leiks.

