Laugardaginn 8. október kl. 12-13 bjóðum við upp á Sögu og súpu.
Að þessu sinni kemur í heimsókn Halldór Svavarsson, seglasaumari og áhugamaður um sögu, sem fæddist í Byggðarholti, Kirkjuvegi 9b, í Vestmannaeyjum árið 1942. Strand Jamestown er fjórða bók höfundar og fjallar um endalok eins stærsta seglskips í heimi á 19. öld en það strandaði við Hafnir á Reykjanesi árið 1881. Teódór Ólafsson, vélstjóri og fyrrum útgerðarmaður á Sæbjörgu VE, var sérstakur áhugamaður um sögu skipsins þar sem akkeriskeðjurnar úr skipinu voru fluttar til Eyja og notaðar áratugum saman sem bólfæri fyrir fiskibáta í höfninni. Sýnishorn af keðjunum má sjá fyrir framan anddyri Safnahússins.
Í spjalli sínu mun Halldór rekja hina stórmerkilegu sögu skipsins sem allt of fáir þekkja. Þegar skipið strandaði var það orðið mannlaust.
- Hvað varð um áhöfnina?
- Hver átti skipið?
- Hvaðan kom það?
- Hvers konar skip var þetta?
Sagan af Jamestown er saga um örlög 4.000 tonna risaskips sem strandar í flæðarmálinu í Reykjanesi, fulllestað af unnum eðalvið, furu, sem átti að fara undir járnbrautarteina á Englandi.
- Hvað varð um þessi ótrúlegu verðmæti sem flutu upp á land?
Kynslóðum saman hafa sögur gengið, hér eru þær loks teknar saman í spennandi og lipurlegri bók sem Halldór Svavarsson kynnir í Sagnheimum á laugardaginn.


