Safnahelgin í Vestmannaeyjum fór fram dagana 29. október til 1. nóvember og var dagskráin vel sótt, að sögn Vestmannaeyjabæjar. Tónlist, bókmenntir, saga og hrekkjavaka settu svip sinn á fjóra daga í söfnum og samkomuhúsum bæjarins.
Horft til ársins 2027
Helgin var sett í Stafkirkjunni á fimmtudag og þar var horft fram á veginn. Á næsta ári verða 400 ár liðin frá Tyrkjaráninu og Sigurhanna Friðþórsdóttir kynnti dagskrá minningarársins fyrir hönd Söguseturs 1627 og Vestmannaeyjabæjar.
Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona sagði frá einleik sínum um Tyrkjaránið, sem verður frumsýndur á næsta ári.
Eyjaperlur, upplestur og nýjar bækur
Hafsteinn Þórólfsson hélt tónleikana „Eyjaperlur og fleiri lög“ í Eldheimum og Steinunn Sigurðardóttir las þar einnig úr nýrri bók sinni. Í Sagnheimum kynntu fjórir rithöfundar nýjar bækur og á lokadegi helgarinnar fjallaði Guðný Ósk Laxdal, sem heldur úti Instagram-síðunni Royal Icelander, um norsku konungsfjölskylduna.
Hvalasöngur og hrekkjavaka
Í Sundlaug Vestmannaeyja hljómaði hvalasöngur í kafi, þar sem tónlist og hvalahljóð fléttuðust saman við ljósmyndir og kvikmyndir úr sundsögu Eyja. Á Bókasafninu réð hrekkjavakan ríkjum á laugardag, með völundarhúsi, sögustund í myrkri og „grikk eða gott“ um kvöldið.
Myndir frá helginni sem Addi London ljósmyndari Tíguls tók, og myndir frá tónleiknum í sundlauginn eru frá Łukasz Wrobel.


















