Í dag, fimmtudag, hefst hin árlega Safnahelgi í Vestmannaeyjum
Að þessu sinni er óvenjulega fjölbreytt dagskrá í boði þá fjóra daga sem dagskráin spannar.
Safnahelgin hefst formlega kl. 17:00 með setningu í Stafkirkjunni þar sem sr. Guðmundur Örn Jónsson setur dagskrána og Kristín Jóhannsdóttir fer yfir það helsta sem í boði er á komandi dögum.
Hinn landsþekkti Magnús R. Einarsson, sem lék m.a. í Þokkabót, mun gleðja gesti með tónum sínum.
Áður hefur Ljósmyndasafn Vestmannaeyja þjófstartað en í Safnahúsinu kl. 13:30-15:30 munu starfsmenn draga fram elstu myndir úr fórum safnsins í bland við nýrri, sem sýna inn í horfinn heim allt frá síðari hluta 19. aldar.
Einstaklega forvitnileg dagskrá.
Kl. 19:00-21:00 opnar í Einarsstofu sýningin Íslenska lopapeysan, uppruni – saga – hönnun. Í kjölfar opnunar verður boðið upp á leiðsögn í lopapeysuprjóni fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Sýningin er samstarfsverkefni Heimilisiðnararsafnsins, Hönnunarsafns Íslands og Gljúfrasteins, húss skáldsins. Nokkrir einstaklingar verða með ullar- og lopavarning til sölu og sýnis. Tilvalið í jólapakkann.
Forðsíðumyndin er bærinn á Eystri-Stakkagerðisjörðinni.