Þann 22. ágúst síðastliðinn var Sæunn Magnúsdóttir sett tímabundið í embætti sýslumanns í Vestmannaeyjum til áramóta. Í ljósi þess hefur hún ákveðið að stíga tímabundið til hliðar sem kjörinn fulltrúi á meðan setningunni stendur. Við teljum það rétta ákvörðun í stöðunni og eðlilegt að hafa hlutverkin skýr á meðan hún gegnir embættinu.
Jóhann Ingi Óskarsson er næsti varamaður og mun taka sæti hennar á meðan. Fullt traust er borið til Jóhanns Inga og þess að hann muni sinna hlutverki sínu af ábyrgð og metnaði.
Innan Miðflokksins í Vestmannaeyjum hefur frá upphafi verið lögð rík áhersla á gott samstarf, gagnkvæmt traust og sterka liðsheild. Sú nálgun nýtist vel við þessar aðstæður og erum við fullviss um að verkefnin verði áfram í góðum höndum.

