Miðvikudagur 27. september 2023

Rýmri samkomutakmarkanir taka gildi á mánudaginn 7.september

05.09.2020

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tilkynnti á fundi þann 4. september rýmri samkomutakmarkanir taki gildi á mánudaginn 7.september.

Nálægðarreglu verður breytt úr 2 metrum í 1 metra og hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman fer úr 100 manns í 200 þegar nýjar reglur um takmarkanir á samkomum taka gildi á mánudaginn, 7. september. Þetta er meginefni nýrrar reglugerðar Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum. Breytingarnar eru í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

Aðrar breytingar á samkomutakmörkunum sem verða með reglugerðinni eru þessar:

  • Hámarksfjöldi á sund- og baðstöðum og líkamsræktarstöðvum fer úr helmingi af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi í 75%.
  • Íþróttir, sviðslistir og önnur menningarstarfsemi getur farið fram þrátt fyrir 1 metra reglu, þ.e. snertingar eru þar heimilar. Um áhorfendur fer eftir almennum reglum um 1 metra og 200 manns í rými.

Opnunartími vínveitingastaða verður áfram takmarkaður við til kl. 23.00.

Reglugerð heilbrigðisráðherra hefur verið send  Stjórnartíðindum til birtingar og tekur sem fyrr segir gildi mánudaginn 7. september.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is