Matey Sjávarréttahátíðin verður haldin dagana 7-10. september þar sem veitingastaðir, fiskframleiðendur og þjónustuaðilar í sjávarsamfélaginu Vestmannaeyjum taka höndum saman og vekja athygli á menningararfleiðinni og fjölbreytta fiskinum sem framleiddur er í Eyjum og bjóða upp margvíslega töfrandi rétti úr frábæru hráefni úr Eyjum. Gestakokkar verða á veitingastöðunum en á veitingastaðnum Einsi kaldi verður Ron McKinlay.
Hægt er að bóka borð á EINSA KALDA HÉR!
Ron McKinlay hefur alltaf elskað mat – hvort sem hann var að rannsaka sunnudagssteik mömmu sinnar eða blanda í vöffludeig á laugardagsmorgnum. Eftir að hafa lokið matreiðsluprófi í heimabæ sínum, Vancouver, hélt hann til Nýja Sjálands til að spila ruðning og ferðast um heiminn, þar til meiðsli bundu enda á feril hans snemma á tvítugsaldri. Það var þá sem hann ákvað að flytja aftur til Kanada og gefa eldamennsku tækifæri.
Árið 2006, á meðan hann skoðaði Michelinstjörnu veitingastaði í Bretlandi, bókaði Ron miða til Edinborgar í Skotlandi fyrir algjöra rælni. Með mikilli þrautseigju tókst honum að komast í þjálfun undir Michelinstjörnu-kokkinum Tom Kitchin, sem átti eftir að verða mikill áhrifavaldur og leiðbeinandi hans. Ron eyddi næstu fjórum árum á The Kitchin og eldaði klassískan franskan mat með skosku hráefni á meðan hann vann 17 tíma á dag. Hann vann hörðum höndum að því að fullkomna eldamennsku sína af gamla skólanum, tileinkaði sér sterkan aga og lærði að taka gagnrýni í eldhúsinu.
Ron tók stökkið árið 2010, alla leið til Melbourne í Ástralíu, þar sem hann hjálpaði til við að opna Maze með engum öðrum en Gordon Ramsay, en hélt síðan til Estelle Bar & Kitchen að vinna undir kokkinum Scott Pickett.
Eftir að hafa unnið sig upp í stöðu aðstoðaryfirkokks, var hann skipaður af kokkinum Pickett til að opna og leiða Saint Crispin sem yfirkokkur, en Saint Crispin vann sér inn tvo hatta árið 2014. Árið eftir tók Ron annað stórt skref – í þetta skiptið sem yfirkokkkur á Six Senses dvalarstaðnum í Zighy Bay, Óman. Þó hann hafi fagnað sjálfsstæði sínu þar og notað tækifærið til að búa til og prófa nýja rétti, ákvað hann eftir 18 mánuði að hann væri tilbúinn að fara aftur heim til Kanada.
Á Canoe sameinar Ron fjölda fágaðra aðferða við nútíma matreiðslustíla í starfi sínu sem yfirkokkur. Hann hefur brennandi áhuga á því að búa til nýja rétti og brögð byggðum á kanadísku hráefni – allt frá þangi frá Bresku Kólumbíu, birkisírópi frá Ontario, tei frá Labrador og krabba frá Fogoeyju.