Þá er loksins komið að því ! Rokkkór Íslands kemur til eyja og býður þér að koma og syngja með í Höllinni laugardaginn 14.sept kl.21:30. Er þetta í fjórða sinn sem Rokkkórinn býður upp á svona skemmtun þar sem textar verða birtir á skjáum svo áhorfendur geti tekið virkann þátt í tónleikunum. Allir geta sungið með þekktum lögum sem hljómsveitir eins og Queen, Toto, Trúbrot, Mannakorn, Uriah Heep, The Eagles, Of monster and man, Todmobile, Metallica, Guns ´n´ Roses, AC/DC, Egó ofl. hafa gert vinsæl. Þetta verður mögnuð kvöldskemmtun fyrir fólk sem hefur gaman af því að syngja 🙂
Hljómsveit Rokkkórsins skipa þeir Sigurgeir Sigmundsson á gítar, Þorvaldur Kári Ingveldarson á trommur og Þórir Rúnar Geirsson (Dúni Geirs) á bassa. Rokkstjórinn Matthías V. Baldursson leikur á hljómborð auk þess að stjórna fjöldasöngnum og kórnum af sinni alkunnu snilld. Hljóðmaður verður Hrannar Kristjánsson.
Rokkkór Íslands er rétt tæplega fjögra ára gamall og fer heldur óhefðbundnari leiðir en gengur og gerist í kórsöng. Kórinn skipar um 30 söngvara sem flestir eiga það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á popp-, rokk- og dægurlagasöng. Útkoman er kraftmikill og algjörlega einstakur hljómur sem er klárlega nýr sinnar tegundar hér á landi og eitthvað sem vert er að kíkja á.
Kórinn var stofnaður vorið 2015 af Matta sax og nokkrum áhugasömum söngvurum sem langaði að búa til öðruvísi kór sem hentaði popp- og rokkröddum. Fyrsta verkefni kórsins var að fara í hljóðver og taka upp nokkur vel valin lög sem voru gefin út 2015-16 og hafa hlotið mjög góðar viðtökur. Kórinn kom fram í fyrsta sinn í Eldborg haustið 2015 á afmælistónleikum Sniglabandsins og eftir það var ekki aftur snúið enda Rokkkór Íslands kominn til að vera! Kórinn hélt svo sína fyrstu tónleika í Kaldalóni í febrúar 2016 þar sem tónlist níunda áratugarins (80´s) var gefin góð skil og hefur haldið þó nokkra tónleika síðan með hinum ýmsu þemu, m.a. 70´s, 90´s, Singalong og órafmagnaða tónleika. Stærsti viðburður kórsins var án efa að syngja með the Foreigner í Laugardalshöllinni í maí 2018, þar stóð kórinn virkilega undir nafni sem Rokkkór Íslands.