19.11.2020
Samkvæmt veðurspá eigum við von að rísandi öldu og hvassviðri seint í kvöld og áfram næstu daga segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Farþegar eru því beðnir um að fylgjast með stöðu mála á miðlum Herjólfs.
Herjólfur siglir til Landeyjahafnar samkvæmt áætlun í dag, 19. nóvember.
Gefin verður út tilkynning ef breyting verður þar á.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00, 09:30, 12:00, 17:00, 19:30 og 22:00
Brotttför frá Landeyjahöfn kl. 08:15, 10:45, 13:15, 18:15, 20:45 og 23:15
Hvað varðar siglingar föstudaginn 20. nóvember, þá verður gefin út tilkynning fyrir kl 06:00 í fyrramálið.
Við viljum góðfúslega benda fólki á að þegar þetta tímabil gengur í garð þá er alltaf hætta á færslum milli hafna og því ekki æskilegt að skilja bifreiðar eftir í annarri hvorri höfninni, Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.
Við biðlum einnig til farþega okkar að virða grímuskylduna um borð í ferjunni sem og að huga vel að sóttvörnum.
Forsíðumynd Tói Vídó