Ríkisstjórnin hefur samþykkt tilraunaverkefni um sjúkraþyrlu

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu heilbrigðisráðherra sem felur í sér undirbúning tilraunaverkefnis um notkun sjúkraþyrlu til að styrkja sjúkraflutninga í landinu og veita þannig bráðveikum og slösuðum sérhæfða þjónustu með sem skjótustum hætti. 

Heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hefur verið falið að útfæra fjármögnun og tímasetningu verkefnisins.

Eins og fram kemur í minnisblaði heilbrigðisráðherra til ríkisstjórnarinnar er aðgengi að heilbrigðisþjónustu í dreifbýli hér á landi víða takmarkað. Landið er strjálbýlt og vaxandi sérhæfing í bráðameðferð gerir auknar kröfur til þess að bráðveikir og slasaðir komist fljótt á Landspítala. Þessum sjúkraflutningum er núna að mestu sinnt með sjúkrabílum og að nokkru leyti með sjúkraflugvél og björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar. Þessa þjónustu þarf að styrkja segir í minnisblaðinu þar sem lagt er til að ráðist verði í tilraunaverkefni til tveggja ára til að kanna betur grundvöll fyrir rekstri og notkun þyrlu í þessu skyni hér á landi.

Lagt er til að þyrlan verði staðsett á suðvesturhorni landsins þar sem útköll vegna slysa og bráðra veikinda eru tíð og hefur fjölgað mikið á síðustu árum á svæðinu, ekki síst á Suðurlandi þar sem straumur innlendra og erlendra ferðamanna hefur verið mikill og vaxandi. Horft er til þess að með þyrlunni og sérhæfðri áhöfn hennar megi stytta umtalsvert viðbragðstíma í útköllum. Þessi þjónusta myndi jafnframt draga úr fjarveru sjúkrabíla og lækna úr héraði og auka þannig öryggi á hlutaðeigandi svæði. Enn fremur væru sjúkraflutningar með þyrlu á suðvesturhorninu mikil bót fyrir sjúkraflutninga fyrir Vestmannaeyjar sem er stærsta byggð Íslands án tengingar við „fastalandið.“ segir í tilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu.

Greint er frá þessu á eyjar.net

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is