13.02.2020 kl 13:00
Ríkislögreglustjóri lýsir yfir óvissustigi almannavarna fyrir allt landið. Ákvörðunin er tekin í samráði við alla lögreglustjóra landsins og í samræmi við veðurspá Veðurstofu Íslands, sem spáir aftakaveðri með appelsínugulum veðurviðvörunum um allt land.
Fylgist með frekari upplýsingum fra almannavörnum, á Facebook https://www.facebook.com/Almannavarnir/ um veðurspá á www.vedur.is, færð á vegum www.vegagerdin
Óvissustigi er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitthvað geti gerst af náttúru- eða mannavöldum, sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar er ógnað.
Samráð á milli almannavarna og þeirra stofnana sem málið varðar er aukið.