27.07.2020
Rey Cup fór fram um síðustu helgi – ÍBV var með þrjú lið á mótinu
ÍBV var með tvö lið í 4.flokki kvenna og eitt lið í 4. flokki karla. Þjálfarar kvenna-liðanna voru Guðmundur Tómas og Glenn og þjálfari karla liðsins var Yngvi Borgþórsson.
Mótið fór fram í Laugardalnum og hófst á miðvikudaginn og var til sunnudags, hvert lið spilaði 2x 25 mínútur og alls 6 leiki yfir allt mótið hvert lið.
A lið stelpnanna endaði í 5.sæti, sigraði þrjá leiki gerði eitt jafntefli og tapaði tveimur.
B lið stelpnanna vann sinn riðil, sigraði fimm leiki og gerði eitt jafntefli.
Strákarnir unnu tvo leiki, gerðu eitt jafntefli og töpuðu þremur leikjum.
Gummi, Yngvi og Glenn eru mjög stoltir af hópnum og sögðu þeir að hópurinn hafi staðið sig mjög vel innan sem utan vallar og hafi verið félaginu til sóma.