Föstudagur 13. nóvember 2026

Reiknað með að dýpkun hefjist í lok næsu viku fyrir Herjólf III – Herjólfur nýi fer í slipp í október

Björgun ehf. sinnir dýpkun í Landeyjahöfn

Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar og Þorsteinn Víglundsson forstjóri Hornsteins eiganda Björgunar ehf. skrifuðu í gær undir samning um viðhaldsdýpkun í Landeyjahöfn árin 2022 til 2025. Björgun ehf. hefur eignast nýtt dýpkunarskip sem mun dýpka höfnina.

Björgun ehf. átti lægsta tilboðið í viðhaldsdýpkunina en áætlað er að dýpka þurfi um 600 – 900 þúsund rúmmetra á árunum 2022 til 2025. Björgun hefur eignast nýtt dýpkunarskip, öflugt sanddæluskip, Álfsnes til að sinna þessari dýpkun meðal annarra verkefna. Skipið verður til taks frá 1. september ár hvert til 1. maí.

Útboðið fór fram á Evrópska efnahagssvæðinu og hljóðaði tilboð Björgunar upp á ríflega milljarð íslenskra króna sem var um 16 prósent yfir áætluðum verktakakostnaði en um helmingi lægra en næsta tilboð. Sjá niðurstöðu útboðsins.

Þorsteinn Víglundsson sagði í samtalið við Vegagerðina að Álfsnesið væri að ljúka verkefnum á Bíldudal en myndi síðan sigla til Landeyjahafnar. Reiknað er með að dýpkun þar hefjist í lok næstu viku. Herjólfur hinn nýi fer í reglulegan slipp í byrjun október. Þá þarf að dýpka meira en annars þar sem Herjólfur III sem leysir af ristir mun dýpra en nýrri ferjan. Ekki er útlit fyrir annað en að því verki verði lokið vel í tæka tíð.

Líkt og forsvarsmenn Björgunar sagðist Bergþóra Þorkelsdóttir binda vonir við að hið nýja dýpkunarskip myndi reynast vel við íslenskar aðstæður.

Í samtali við eyjar.net segir Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóra Herjólfs ohf. Að Herjólfur sé á leiðinni í slipp í Hafnarfirði og er áætlað að hann verði tekinn þar upp þann 8. október.

„Um er að ræða hefðbundinn slipp þar sem að hefðbundin slippverk verða unnin ásamt verkum sem þarf að framkvæma á meðan skipið er ekki í áætlun. Stærstu verkin eru að skipt verður út landfestar-spilum, en þau gömlu voru gölluð. Ásamt því verður bílaþilfarið sandblásið að hluta og málað.” segir Hörður Orri í samtali við eyjar.net

Aðspurður um verktíma segir hann að áætlaður verktími sé þrjár vikur gegn því að ekkert óvænt komi upp.

Mynd: Heimir Hoffritz

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search