27.04.2020
Hjólum skal leggja í hjólagrindur eða við grindverk og læsa. Hjólin má nota í frímínútum á skilgreindum hjólasvæðum. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á hjólum sínum og búnaði. Nauðsynlegt er að nemendur noti hjálma og eru foreldrar beðnir um að ganga eftir því við sín börn að það sé gert. Eins er mikilvægt að brýna fyrir börnum að vera ekki með heyrnartól í eyrunum við hjólreiðar.
1. og 2. bekkur: Samkvæmt umferðarlögum mega börn yngri en 9 ára ekki hjóla á akbraut nema undir leiðsögn og eftirliti manns sem náð hefur 15 ára aldri. Þar af leiðandi getur skólinn ekki mælt með að nemendur í fyrsta og öðrum bekk komi á hjóli í skólann nema í fylgd fullorðinna.
3. – 4. bekkur: Nemendum í þessum bekkjum er heimilt að hjóla í skólann samkvæmt umferðarlögum. Æskilegt er að yngri nemendur séu í fylgd eldri einstaklinga. Ákvörðun er foreldra og á ábyrgð þeirra.
5. – 10. bekkur: Nemendum í þessum bekkjum er heimilt að koma á hjólum í skólann.
Hafa ber í huga
Miðað við almennan þroska og getu barna er barnið fyrst tilbúið til að hjóla úti í umferðinni við 10 til 12 ára aldur. Fram að þeim aldri er fjarlægðarskynið ekki fullþroskað þannig að barninu finnst hlutirnir vera lengra í burtu en þeir í rauninni eru. Börn á þessum aldri hafa heldur ekki eins góða hliðarsýn og þeir sem eldri eru. Heyrn barna yngri en 8 ára er ekki fullþroskuð og geta þau því ekki greint úr hvaða átt hljóð kemur. Við 10 ára aldur hafa þau náð fullum jafnvægisþroska.
Helstu orsakir reiðhjólaslysa hjá börnum yngri en 10 ára?
- Börnin beygja skyndilega fyrir bíla
- Börnin víkja ekki fyrir bílum
- Börnin eru annars hugar
- Börnin eru að stytta sér leið
- Börnin hjóla á rangri akrein
- Börnin fara ekki eftir umferðarskiltum
- Börnin hafa lélegt jafnvægi