03.11.2020
Um starfsmenn í þessum verslunum gildir að þeir mega ekki vera fleiri en 10 í sama rými og samgangur á milli rýma starfsmanna er óheimill. Öllum er skylt að bera andlitsgrímu í verslunum. Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt breytingu á reglugerð um takmarkanir á samkomum þar sem fjöldatakmörk í verslunum eru skýrð.
Með reglugerð ráðherra eru tekin af tvímæli um að fjöldatakmarkanir í verslunum séu bundnar við fjölda viðskiptavina, óháð fjölda starfsfólks. Að öðru leyti gilda ákvæði um fjöldatakmarkanir hvað varðar aðra starfsemi óbreytt, samkvæmt reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.
Þetta kemur frá á vef stjórnarráðs Íslands.