Föstudagur 13. nóvember 2026

Rampar í Eyjum – myndir

Römpum upp Ísland

Aðgengi á Íslandi er oft mjög takmarkandi fyrir hreyfihamlaða. Því er mikilvægt að koma upp römpum eða tryggja aðgengi með öðrum hætti.  Ramparnir geta verið jafn misjafnir og þeir eru margir — og þeir eiga svo sannarlega að vera margir.

Oft þarf ekki annað en að leysa aðgengi upp eina tröppu eða yfir háan þröskuld með einföldum hætti. Með sameiginlega átaki þjónustuaðila, verktaka og yfirvalda á þetta ekki að vera mikið mál — og með því stuðlum við að bættu umhverfi og betra aðgengi á Íslandi.

1000 rampar fyrir 11. mars 2026

Tilgangur verkefnisins er að auka aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum á Íslandi. Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, er hvatamaður
verkefnisins. Stofnfé sjóðsins eru framlög einstaklinga, fyrirtækja, samtaka og stofnana sem vilja leggja sitt af mörkum til  að tryggja aðgengi hreyfihamlaðra um allt land.

Nú fyrir stuttu komu verktakar hingað til Eyja frá verkefninu og settu upp sjö rampa í samstarfi við Vestmannaeyjabæ. Hér má sjá nokkrar myndir.

Leturstofan Vestmannabraut, fyrir og eftir.

Sjampó Vestmannabraut, fyrir og eftir.

 

Volcano 73 Bárustíg, fyrir og eftir.

The Brothers Brewey.

Litla Skvísubúðin.

Hárstofa Viktors.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search