Hráefni:
1 ½ samlokubrauð langskorið (10 sneiðar)
1½ kg rækjur
rækjur til skreytingar
10-15 harðsoðin egg (söxuð smátt)
½ dós af aspas (saxa smátt og þerra vel)
750-1000 g majónes
1 dós sýrður rjómi
sítrónusafi eftir smekk
þunnar sítrónu- og agúrkusneiðar til skreytinga
Aðferð:
Blandið saman rækjum, aspas, eggjum, 750 g af majónesi, sýrðum rjóma og sítrónusafa. Raðið tveimur brauðsneiðum hlið við hlið og smyrjið brauðið með blöndunni. Leggið svo næsta lag af brauði ofan á og smyrjið með rækjublöndunni. Allt í allt verður brauðtertan fimm hæðir með fjórum lögum af salati.
Smyrjið brauðtertuna á öllum hliðum með þunnu lagi af majónesinu sem eftir er og passið að hylja tertuna alveg, annars þornar brauðið. Þekjið hliðarnar svo með eggjum, radísum, þunnum sítrónu- og agúrkusneiðum eða því sem hentar. Brauðtertan er svo skreytt með rækjunum sem eftir eru og öðru því sem fólk velur sjálft.

