Þriðjudagur 5. desember 2023
Kristján ráðherra

Ráðherra gerði grein fyrir stöðu loðnuleitar

05.01.2021

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir stöðu loðnuleitar. Vísaði ráðherra til þess í gær fóru bæði rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar ásamt þremur uppsjávarskipum til mælinga á loðnustofninum.

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson mun hefja mælingar út af Vestfjörðum en rs. Bjarni Sæmundsson mun leita og mæla á grunnslóð út af Norðurlandi. Uppsjávarskipin Aðalsteinn Jónsson, Ásgrímur Halldórsson og Polar Amarok munu leita út af Austfjörðum, Norðausturlandi og djúpt út af norðanverðu landinu. Alls eru um 20 sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar um borð í skipunum auk sjómanna skipanna. Því eru um 75-80 manns sem koma beint að verkefninu á hafi úti.

Í samræmi við breytingatillögu fyrir 3. umræðu var í fjárlögum ársins 2021 ákveðið að Hafrannsóknastofnun fái 120 milljón króna aukaframlag til rannsókna og leitar að loðnu enda skiptir það miklu fyrir viðspyrnu efnahagslífsins að loðna veiðist í vetur.

Hafrannsóknastofnun hefur gert samninga við útgerðir uppsjávarskipa um þátttöku í mælingum á loðnu í janúar og febrúar og gerir aukaframlagið það að verkum að hægt verður sinna mælingum með mörgum skipum og á þann hátt fá niðurstöður fáist á stuttum tíma þegar aðstæður á miðunum leyfa.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is