Í dag 26.mars fer fram prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum til sveitarstjórnarkosninga 2022.
Í tilkynningu frá kjörnefnd kemur fram að kjörstaður er í Ásgarði og opið er frá kl.10:00 til 18:00.
Frambjóðendur eru með sameiginlegt kosningakaffi í Akóges kl.14:00-17:00 og sameiginleg kosningavaka frambjóðenda verður í Akóges kl.20:00.
Úrslitin verða birta á facebooksíðu Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.
Allir þeir sem eru 15 ára og eldri, með lögheimili í Vestmannaeyjum og eru skráðir í Sjálfstæðisflokkinn
hafa tök á að taka þátt í prófkjörinu. Hvetjum við alla til þess að nýta kosningaréttinn og taka þátt.


