Plokk dagurinn var haldinn um allt land í gær. Í Vestmannaeyjum var eyjunni skipt upp og um 17 félög skiptu sér niður og plokkuðu upp rusl.
Plokkurunum var svo boðið til grillveislu eftir gott dagsverk, var hún í boði bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar á Stakkagerðistúninu. Stefán Geir átti leið hjá og smellti af nokkrum myndum sem við birtum hér með fréttinni.
Höldum áfram að vera dugleg að halda eyjunni okkar hreinni og fínni.








