Matvælastofnun varar neytendur við einni framleiðslulotu af Örnujógúrt með jarðarberjum og AB-gerlum eftir að plastbiti fannst í vörunni. Framleiðandinn, Arna ehf. í Bolungarvík, hefur innkallað jógúrtina.
Innköllunin nær til 200 gramma dósa með best fyrir-dagsetningunni 13.11.26 og strikamerkinu 5694230157044. Aðrar lotur og aðrar vörur frá Örnu eru ekki hluti af innkölluninni.
Varan fór meðal annars í Krónuna og Bónus, sem báðar reka verslanir í Vestmannaeyjum, en einnig í Hagkaup, Prís, Nettó, Fjarðarkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Hlíðarkaup og Melabúðina.
Þeir sem eiga jógúrtina heima eru beðnir að borða hana ekki, heldur farga henni eða skila henni í verslunina þar sem hún var keypt og fá nýja vöru eða endurgreiðslu.

