Í gærkvöldi mættu Helgafellsfélagar til skreytinga á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum hér í Vestmannaeyjum. Þetta hefur klúbburinn gert nánast frá því að heimilið var byggt eftir eldgosið 1973 og er þetta mjög ánægjulegt verkefni að koma heimilinu í jólabúning. Vel var mætt og létu blessuð börnin sjá sig líka og réttu hjálparhönd við verkið en það er eins hjá okkur og öðrum Kiwanisklúbbum það er mikið um að vera þegar aðventan gengur í garð við allskonar samfélagsverkefni og fjáraflanir með hjálp bæjarbúa. Já það má með sanni segja Kiwanis er fyrir alla þá sem vilja láta gott af sér leiða segir Tómas Sveinsson.
Þriðjudagur 21. mars 2023