04.02.2020 kl 09:30
Áhugaljósmyndarinn Hólmgeir Austfjörð sýnir hérna frá lífinu um borð í Ottó, geggjaðar myndir, lofum Geira að taka orðið:
Þá eru kallarnir á King Ottó N á landleið með öll kör full eða um 150 tonn. Við erum nú við Snæfellsnes og meiningin var að landa kl 06:00 í fyrramalið. Uppistaða aflans er karfi, því næst kemur þorskur, svo ufsi og ýsa ásamt smá mixi sem samanstendur af steinbít, löngu, og allskonar?
Meðfylgjandi eru myndir af því sem fyrir augu bar frá brottför til heimferðar.