Í tilkynningu frá handboltanum segir:
Við færum fleiri gleðifréttir úr okkar herbúðum.
Petar Jokanovic hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Handknattleiksdeild ÍBV.
Petar hefur leikið með ÍBV undanfarin tvö tímabil. Hann hefur verið einn af lykilmönnum liðsins og hefur sýnt hvers hann er megnugur í markinu hjá okkur.
Hann átti meðal annars stóran hlut í sigri liðsins í bikarúrslitunum á síðasta ári, þegar hann fór á kostum og var valinn maður leiksins.
Petar líkar lífið í Vestmannaeyjum afskaplega vel og hefur náð að aðlagast því mjög vel enda algjör toppmaður.
Við erum ótrúlega ánægð með að hafa náð samkomulagi um áframhaldandi veru hans hjá félaginu og það er mikilvægur þáttur fyrir átökin í Olísdeildinni næstu árin.
Við óskum Petar til hamingju og hlökkum til áframhaldandi samstarfs!
Forsíðumynd er frá facebooksíðu ÍBV Handbolta

