Páll Magnússon greindi frá því í dag að hann myndi ekki gefa kost á sér í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi í næsta mánuði
Í færslu sinni á facebook segir hann:
Það er ekki vegna neinna ytri aðstæðna í pólitíkinni sem ég tek þessa ákvörðun heldur er hún á endanum persónuleg – kemur innan frá. Oft þegar ég hef staðið frammi fyrir mikilvægum ákvörðunum og áskorunum lýkur vangaveltunum bara með einni einfaldri spurningu: Langar mig nógu mikið til að gera þetta? Svarið að þessu sinni er nei.
Ég stóð frammi fyrir nákvæmlega sömu spurningu fyrir tæpum 5 árum og þá var svarið já. En nú hefur áhuginn einfaldlega dofnað – neistinn kulnað.
Og af hverju sagði ég þá fyrir nokkrum vikum að ég ætlaði að gefa kost á mér áfram? Jú, það er einfalda reglan um að þangað til ný ákvörðun er tekin þá gildir sú gamla!
Þetta er sem sagt persónulega niðurstaðan – pólitíska kveðjubréfið kemur svo innan tíðar segir Páll Magnússon.

