27.05.2020
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum er meðal umsækjenda um stöðu lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.
Fimm umsóknir bárust um stöðuna sem auglýst var laus til umsóknar, en umsóknarfrestur rann út 25. maí síðastliðinn. Hæfnisnefnd mun í framhaldinu meta umsækjendur, að því er segir í frétt á vef Stjórnarráðsins.
Eftirtaldir sóttu um stöðuna. Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir, aðstoðarsaksóknari hjá embætti Héraðssaksóknara, Halldóra Kristín Hauksdótti, lögmaður hjá Akureyrarbæ, Hreiðar Eiríksson, lögfræðingur hjá Fiskistofu, Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum og Sigurður Hólmar Kristjánsson, saksóknarfulltrúi og staðgengill lögreglustjóra á Norðurlandi vestra.