Miðvikudagur 6. desember 2023

Óvissustig vegna landriss vestan við fjallið Þorbjörn á Reykjanesi

26.01.2020 kl 17:50

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum vegna landriss vestan við fjallið Þorbjörn á Reykjanesi. 

Undanfarna daga hefur landris og aukin jarðskjálftavirkni mælst á Reykjanesi og telja jarðvísindamenn Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnunar HÍ mögulegt að um sé að ræða kvikusöfnun vestan við Þorbjörn, þótt ekki sé útilokað að aðrar ástæður geti verið fyrir þessari virkni. 

Samhliða hefur Veðurstofa Íslands fært litakóða fyrir flug á gult. 

Íbúafundur verður haldinn í íþróttahúsinu Grindavík kl. 16 á morgun, mánudag 27. janúar, þar sem vísindamenn frá Veðurstofunni og Jarðvísindastofnun munu gera grein fyrir stöðunni auk fulltrúa frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Suðurnesjum.  

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Veðurstofan og þær stofnanir sem málið varða hafa aukið samráð og fylgjast með stöðunni.  

Óvissustigi er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru- eða mannavöldum, sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað. 

Fylgist með frekari upplýsingum fra almannavörnum, á Facebook https://www.facebook.com/almannavarnir/  

Nánari upplýsingar um jarðhræringar má sjá á www.vedur.is  

Fréttatilkynning Veðurstofu Íslands 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is