Það heyrðust fagnaðaróp þegar 3.bekkur rölti niður Skannsbrekkuna þegar krakkarnir sáu leiktækin
Þær Sigga Ása, Kolla og Dísa umsjónakennarar 3.bekkjar ásamt stuðningsfulltrúum þeirra og nokkrum foreldrum sem hjálpuðu til voru búin að undirbúa óvissuferð með bekkjum sínum í dag. Fundið var út hvar mesta skjólið var og varð Skannskin fyrir valinu, þar voru blásin upp hoppukastali og uppblásin fótboltavöllur.
Grillað voru pylsur og smá súkkulaði var í boði í eftirmat. Svo náði hópurinn að syngja hvattningar söng fyrir stelpurnar í kvennafótboltanum þegar þær sigldu með Herjólfi fram hjá, en þær eru nú á leið til Reykjanesbæjar að keppa við Keflavík í dag.