Enn ríkir óvissa um hvenær Herjólfur IV verður kominn aftur í fulla þjónustu, en samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdastjóra Herjólfs ohf. er viðgerð á mótor skipsins á áætlun og vonast er til að hann berist til landsins eftir miðjan næsta mánuð.
Í svari við fyrirspurn Tíguls segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., að lítið hafi breyst frá síðustu stöðuuppfærslu þann 11. maí, þó bókunarkerfi félagsins sé nú komið í eðlilegt horf.
Dýpkun heldur áfram í Landeyjahöfn
Að sögn Ólafs hafa síðustu dagar og vikur boðið upp á góða dýpkunarglugga í Landeyjahöfn, en enn sé þó nokkuð í land með að ná fullu dýpi í höfninni.
Dýpkunarskipið Álfsnes er væntanlegt til hafnar á morgun og mun vinna við dýpkun halda áfram næstu daga.
Mótorinn væntanlegur í næsta mánuði
Viðgerð á mótor Herjólfs IV gengur samkvæmt áætlun. Þegar mótorinn kemur til landsins verður skipið tekið úr áætlun til uppsetningar og er gert ráð fyrir að sú vinna taki um fjóra sólahringa.
„Við vonumst til þess að fá mótorinn til okkar eftir miðjan næsta mánuð,“ segir í svari framkvæmdastjórans.
Baldur eða Herjólfur III
Ekki liggur enn fyrir hvort Baldur eða Herjólfur III muni leysa Herjólf IV af meðan á viðgerð stendur.
Herjólfur ohf. óskaði eftir því að fá Baldur til Vestmannaeyja um liðna helgi, en ekki reyndist mögulegt að verða við þeirri beiðni. Félagið hefur þó kallað eftir varaskipi sem fyrst til að aðstoða við siglingar samhliða Herjólfi IV þar til skipið verður komið aftur í fulla áætlun.
Framkvæmdastjórinn segir vænta þess að skýrari mynd fáist á stöðu varaskips á allra næstu dögum og að upplýsingar verði birtar um leið og þær liggja fyrir.

