Bilun kom upp hjá Ottó N Þorlákssyni VE rétt suður af Eyjum og er verið að draga hann í land. Það var Frosti frá Grenivík sem dróg hann til Eyja þar sem Lóðsinn tók á móti honum og er að draga til hafnar.
Samkvæmt Eyþóri Harðarsyni, útgerðarstjóra Ísfélagsins, fór eitthvað í aðalvél skipsins og það varð aflvana. „Nú verður bara farið í að rífa upp vélina og meta tjónið. Það er ómögulegt að segja til um hversu alvarlegt það er á þessari stundu,“ sagði Eyþór. Þá sagði hann það skýrast eiga eftir að skýrast hvort um sé að ræða daga-, viku- eða mánaðalangt stopp.

