Á fundi framkvæmda- og hafarráðs í gær lá fyrir bréf frá Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja dags. 26.janúar 2021 upplýsingar um hvaða vinna sé í gangi varðandi stórskipahöfn í Vestmannaeyjum.
Fram kom í máli framkvæmdastjóra að vinna sé hafin á vegum siglingasviðs Vegagerðarinnar vegna rannsókna á Vestmannaeyjahöfn og þeim möguleikum sem eru til stækkunar bæði varðandi stórkipakant norðan Eiðis og aðra möguleika.
Ráðið tók undir áhyggjur bréfritara og vill beina því til Vegagerðar að hraða sem mest þeim rannsóknum sem fram þurfa að fara og minnir á að þann 20.maí 2020 samþykktu fulltrúar Vegagerðarinnar að setja í gang vinnu við rannsóknir á höfninni. Að mati ráðsins þarf að hraða þessum rannsóknum svo hægt sé að taka ákvörðun sem fyrst.
Ráðið samþykkir að fela framkvæmdastjóra að óska eftir fundi með Vegagerðinni, fulltrúum Vestmannaeyjahafnar og bæjaryfirvalda.
Ráðið felur framkvæmdastjóra að svara bréfritara í samræmi við umræður á fundinum.
Hér má lesa bréfið frá Útvegsbændafélagi Vestmannaeyjar:


