31.07.2020
Í nafni Guðs + föður og sonar og heilags anda. Amen.
Vertu, guð faðir, faðir minn,
Í frelsarans Jesú nafni,
Hönd ín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson, Ps. 44)
Venju samkvæmt hefði formleg setning Þjóðhátíðar verið í Herjólfsdal í dag. Kórinn okkar hefði sungið kunna sálma í helgistund sem leidd er af prestum Landakirkju sem flytja jafnframt hugvekju. Ljóst er að svo er ekki nú í ár og hlökkum við til næstu Þjóðhátíðar sem verður vonandi með hefðbundnari hætti en nú.
Þrátt fyrir það er ljóst að ýmsir munu koma saman í Eyjum og víðar til að gleðjast og eiga njóta samverustunda með fjölskyldu og nánustu vinum. Að efla fjölskyldu- og vináttutengsl er að sjálfsögðu alltaf til bóta og gefandi. Hins vegar vonum við og viljum að við förum með gát og sýnum ítrustu aðgát og árvekni í sóttvörnum. Það er alltaf mikilvægt og sérstaklega í ljósi nýrra áherslna sem kynntar voru í gær. Við skulum vera hluti af lausninni en ekki vandanum.
Guð vaki yfir okkur öllum um helgina, blessi samskipti okkar og gefi okkur umburðarlyndi og aðgát. Amen.
Leggjum inn í helgina með bæninni sem Guð kenndi okkur og kennir enn í dag og biðjum saman.
Faðir vor, þú, sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,
verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni.
Gef oss í dag vort daglegt brauð.
Og fyrirgef oss vorar skuldir
svo sem vér og fyrirgefum
vorum skuldunautum.
Eigi leið þú oss í freistni,
heldur frelsa oss frá illu.
Því að þitt er ríkið,
mátturinn og dýrðin
að eilífu. Amen.
(Mynd tekin við setningu Þjóðhátíðar árið 2019)