Föstudaginn 1. Október kl 14:00 verður formlega opnuð augnlæknastofa HSU
Stofan verður búin öllum nýjasta og fullkomnasta tækjabúnaði sem völ er á:
- ICARE IS200 augnþrýstimælir
- CIRRUS 5000 OCT sneiðmyndatæki
- CLARUS 500 augnbotnamyndavél
- HUMPHREY field Analyser sjónsviðsmælir
- SL 220 Raufarlampi
Sjónlag augnlæknastöð mun sjá um augnlæknastofuna. Sjónlag var stofnuð árið 2001 og er í fararbroddi hér á landi hvað varðar tæknibúnað og þjónustu við sjúklinga.
Sjónlag hefur á tveimur skurðstofum framkvæmt yfir 9000 sjónlagsaðgerðir með laser og yfir 1000 augasteinsaðgerðir.
Hjá Sjónlagi starfa átta augnlæknar, þrír sjóntækjafræðingar og fimm hjúkrunarfræðingar ásamt öðru starfsfólki. Nýlega voru öll lasertækin uppfærð og bjóðum við nú upp á hníflausa Femto lasertækni við lasik sjónlagsaðgerðir. Enn fremur hefur Sjónlag verið brautryðjandi þegar kemur að meðferð við ellifjarsýni en undanfarin ár hafa fjölmargir skjólstæðingar verið meðhöndlaðir með fjölfókus augasteinum og PresbyMax laser meðferð.
Hér á myndinni fyrir neðan má sjá alla þá styrktaraðila sem stóðu á bakvið þessa flottu stofu. En það eru þeir hjá hjá Lions sem héldu utan um alla aðgerina. Og fjármögnuðu 50% af kostnaðnum. Þeir leituðu til fyrirtækja í Vestmannaeyjum fyrir hinum 50% sem gekk mjög vel að sögn Sigmars Georgssonar í samtali við Tígul.
Lesa má eldri frétt hér: Augnlæknastofan í Vestmannaeyjum – undirritun starfssamnings