Laugardagur 30. september 2023
krakkar, börn

Opnað fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk vegna áhrifa af Covid-19 – linkur í frétt

20.11.2020

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.

Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Alls verður um 900 milljónum króna varið í verkefnið árin 2020 og 2021 en Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, kynnti aðgerðina í vor og er hún hluti af aðgerðapakka sem ætlað er að veita mótvægi vegna þeirra áhrifa sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á afkomu efnaminni heimila í landinu. Í framhaldinu verður ráðist í vitundavakningu í samstarfi við menntamálaráðuneytið, sveitarfélög, Íþróttasamband Íslands og Ungmennafélag Íslands.

Hægt er að sækja um styrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí 2020. Styrkurinn er 45.000 kr. á hvert barn og um 13.000 börn eiga rétt á styrknum.

Sveitarfélögin annast afgreiðslu styrkumsókna eftir að búið er að kanna rétt til styrksins inni á Ísland.is (https://island.is/styrkur-til-ithrotta-og-tomstundastarfs)

Til að sækja um styrkinn þarf að hafa samband við Fjölskyldu- og fræðslusvið Vestmannaeyja:

  1. a)með því að senda tölvupóst á felags@vestmannaeyjar.is
  2. b)hafa samband í gegnum síma 488 2000 og biðja um símtal við ráðgjafa vegna tómstundastyrks
  3. c)koma í afgreiðslu sviðsins að Rauðagerði, Boðaslóð 8-10 og fylla þar út umsókn um styrkinn

Með styrkumsókn þarf að fylgja útprentuð staðfesting frá island.is (má einnig vista og senda rafrænt í tölvupósti með umsókninni) um að viðkomandi eigi rétt á styrknum og einnig þarf að fylgja staðfesting á útlögðum kostnaði vegna íþrótta- og tómstundastarfs barns/barna í fjölskyldunni.

Ef vafi leikur á hvort ákveðið íþrótta- og tómstundastarf sé styrkhæft er hægt að fá leiðbeiningar sbr. leiðirnar hér að ofan.

Einungis er hægt að sækja um styrk vegna þátttöku í íþrótta- eða tómstundastarfi, ekki til kaupa á íþróttavörum, búnaði eða öðru þess háttar. Einungis er styrkt vegna barna á aldrinum 6-16 ára, þ.e. á grunnskólaaldri.

Starfsmenn Fjölskyldu- og fræðslusviðs afgreiða umsóknir sem berast og svara umsækjendum að því loknu eða innan mánaðar frá því að öll gögn liggja fyrir.  Ef viðkomandi fær synjun á umsókn sína frá starfsmönnum sviðsins eða er ósáttur við niðurstöðu málsins getur hann skotið málinu til Fjölskyldu- og tómstundaráðs sem fjallar þá um málið. Erindi þess eðlis skal sent skriflega ásamt rökstuðningi umsækjanda til:

Styrkina er hægt er að nota til niðurgreiðslu á þátttökugjöldum vegna íþróttaiðkunar, tónlistanáms eða annarra tómstunda. Sveitarfélög setja reglur um úthlutun styrkjanna en fyrirkomulag getur verið breytilegt á milli sveitarfélaga til dæmis varðandi hvaða íþrótta- og tómstundastarf er styrkhæft, hvaða gögnum beri að skila með umsókn og afgreiðslutími umsókna.

Rannsóknir hafa sýnt að mikilvægt er að halda sem flestum börnum virkum í íþrótta- og frístundastarfi og tryggja jafnt aðgengi barna og unglinga að slíku starfi. Lögð hefur verið áhersla á að ná til sem flestra forráðamanna og hefur því verið komið af stað kynningarátaki á fjölda tungumála um íþrótta- og tómstundastyrkina.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Covid-19 faraldurinn hefur haft gríðarleg áhrif á allt íþrótta- og tómstundastarf í landinu. Þegar þrengir að fjárhag fjölskyldna er mikil hætta á að þær dragi úr þátttöku barna í íþrótta- og tómstundastarfi og það á sérstaklega við um fjölskyldur í neðri hluta tekjudreifingarinnar. Rannsóknir sýna að íþróttir og frístundir hafa forvarnargildi og því er gríðarlega mikilvægt að við gerum allt sem við getum til að koma í veg fyrir brottfall hjá krökkum í íþróttum og tómstundum vegna faraldursins.”

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is