Sunnudagur 15. nóvember 2026

Opinbert app Golfklúbbsins og ný forgjafaröð á holum vallarins

Eftirfarandi tilkynning birtist frá stjórn Golfklúbbs Vestmannaeyja:
Nú þegar sumarið nálgast, þó það sjáist ekki úti í augnablikinu þá eru tvö atriði sem stjórn GV vill upplýsa ykkur um. Annars vegar opinbert app GV og hins vegar ný forgjafaröð á holum vallarins.
GV hefur ákveðið að endurvekja samstarf við danska fyrirtækið GLFR business um að GLFR „appið“ verður opinbera app okkar hjá GV. Það þýðir það að allar fréttir, tilkynningar og mótamál munu verða sett þar inn. Allt sem fer þar inn birtist einnig á heimasíðu okkar gvgolf.is og á facebooksíðu klúbbsins.
Við hvetjum ykkur til að ná ykkur í appið, kynna ykkur það og nýta það í sumar. Guðgeir og félagar fá greenkeeper app sem nýtist þeim í vinnu en einnig bíður það upp á að hægt er að setja holustaðsetningar inn þannig að mælingar verði enn nákvæmari en þekkist.
Appið tengist við aðgang ykkar á golfbox og er vinna við tengingar milli Golfbox og GLFR. Það er langt komið þannig að mótamál verði einnig inn í GLFR appinu með tíð og tíma.
Á síðasta fundi stjórnar var samþykkt að fara í uppfærslu á forgjafaröð á holum á vellinum í Eyjum. Töluvert er síðan síðasta uppfærsla var og eftir að nýtt forgjafakerfi tók gildi (World handicap system) þá voru settar almennar vinnureglur varðandi uppsetningu á forgjafaröð á völlum. Búið er að raða vellinum upp aftur og var tekið mið af skori síðustu tveggja ára. Búið er að uppfæra þetta inn í golfboxi og í GLFR kerfinu.
Hér er ný röð forgjafar:
Hola Forgjöf
1 12
2 4
3 14
4 10
5 16
6 8
7 2
8 18
9 6
10 17
11 5
12 7
13 1
14 15
15 11
16 9
17 3
18 13

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search