Miðvikudagur 7. júní 2023

Opin ráðstefna um Tyrkjaránið

Sunnudaginn 7. nóv. nk. kl. 12 er boðað til opinnar fjölþjóðlegrar  ráðstefnu um Tyrkjaránið í Vestmannaeyjum

Ráðstefnan er á vegum Sögusetursins 1627 og Uppbyggingarsjóðs SASS og verður í Safnahúsinu.  Þar verða kynntar nýjar, fræðilegar útgáfur svo og nýjar skáldsögur byggðar á Tyrkjaráninu. 

Ráðstefnan er hluti af starfi Sögusetursins sem gegnir því meginhlutverki að beita sér fyrir fræðslu um sögu Vestmannaeyja, stuðla að rannsóknum, efna til ráðstefna og viðburða og standa að útgáfu efnis sem tengist sögu Vestmannaeyja. 

Sérstakir gestir ráðstefnunnar þessu sinni eru allir vel þekktir fyrir störf sín sem fræðimenn og rithöfundar. Gestirnir eru:

  • Karl Smári Hreinsson. Hann fjallar um útgáfur og not Reisubókar séra Ólafs Egilssonar.
  • Mats Royter kynnir skáldsögu sína um vestmannaeyska fjölskyldu sem handtekin var í Tyrkjaráninu og flutt til Alsír.
  • Joris van Os fjallar sérstaklega um þátt Hollendinga í Tyrkjaráninu.
  • Adam Nichlos fjallar sérstaklega um foringja innrásarhópanna, þá Murat Reis og Murate Flamenco.

Ráðstefnugestum gefst svo tækifæri til að bera fram fyrirspurnir til þeirra félaga.

Ragnar Óskarsson setur ráðstefnuna.

Kári Bjarnason stýrir ráðstefnunni.

Tríó Ásgeirs Ásgeirssonar mun svo flytja ráðstefnugestum íslensk þjóðlög í austrænum stíl og þá verður og boðið upp á veitingar í anda Norður- Afríku.

Sögusetrið 1627 hvetur alla til að mæta og taka þátt í dagskránni sem snertir svo sannarlega sögu okkar og menningu.

Sögusetrið 1627

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is