Þóranna og Steingrímur bjóða heim kl. 13:30 – 15:30 í dag.
Hvorki Rembrant né Kjarval
Hvernig skreytum við hús okkar?
Hin stóru nöfn listasögunnar eru fjarlæg, en að okkur hafa þó dregist ýmsar myndir og minningar. Hvert hús hefur sinn stíl og datt okkur í hug að leyfa öðrum að skoða okkar safn. Steingrímur og Þóranna hafa gert Ólafsvík húsið að Hilmisgötu 7 að heimili sínu og sex barna þeirra í fjörutíu ár og húsið sjálft hefur staðið hér í níutíu ár. Biblíur af ýmsu tagi og húsbóndans hatta má bera augum í leiðinni.