14.07.2020
Herjólfur siglir ekki í dag og á morgun vegna vinnustöðvunar undirmanna Herjólfs.
Jónas Garðarsson, formaður samninganefndar Sjómannafélags Íslands sagði í kvöld í samtali við fréttavef Morgunblaðsins að það sé allt hið tíðindalausasta á vígstöðvunum. Fram kemur að í frétt mbl.is að deilan sé komin á borð ríkissáttasemjara og segir Jónas enga fundi fyrirhugaða.
Félagsmenn Sjómannafélags Íslands hafa áður lagt niður störf í einn sólarhring, sjöunda júlí síðastliðinn. Þá er þriðja vinnustöðvunin áætluð frá miðnætti 21. júlí, ef deiluaðilar ná ekki saman. Sú vinnustöðvun mun standa yfir í þrjá sólarhringa.
Jónas segir Sjómannafélag Íslands standa fast á sínum kröfum. Höfuðkrafan er sú að fullur vinnumánuður verði styttur um 25% án launaskerðingar.
Þriðja og síðasta vinnustöðvunin er boðuð frá miðnætti 21. júlí. 2020.
Í dómi félgagsdóms kemur eftirfarandi fram:
Frá og með klukkan 00:00 þriðjudaginn 21. júlí 2020 til klukkan 00:00 – föstudaginn 24. júlí 2020 (þrír sólarhringar)
Aukaferðir hafa verið settar á 13. júlí og 16. júlí
