Þriðjudagur 5. desember 2023

Ólöglegur leikmaður í Lengjubikar meistaraflokks karla

Skrifstofa KSÍ hefur staðfest að KFS tefldi fram ölöglegu liði gegn Njarðvík í leik í Lengjubikar meistaraflokks karla, sem fram fór 5. mars síðastliðinn. Úrslitum leiksins er því breytt, í samræmi við grein 40.1 í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót, og Njarðvík dæmdur 3-0 sigur.

Í reglugerðum KSÍ um deildarbikarkeppni karla og kvenna, greinum 10.1 og 11.2 segir:

10. SEKTIR
10.1 Lið, sem mætir ólöglega skipað til leiks, skal sæta sekt að upphæð kr. 30.000 og að auki kr. 30.000 fyrir hvern leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með viðkomandi félagi og tekur þátt í leiknum. Félag, sem notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, skal sæta sektum að upphæð kr. 100.000.

11. STJÓRN KEPPNINNAR
11.2 Félag, sem notar leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með því eða notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, telst hafa tapað leiknum með markatölunni 0-3 nema tap hafi verið stærra, þá skal sú markatala ráða. Staðfesti skrifstofa KSÍ að þátttakandi hafi verið óhlutgengur í leik skal mótanefnd þegar í stað skrá úrslit leiksins skv. ofangreindu og tilkynna það viðkomandi félögum. Heimilt er að kæra slíka skráningu til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ og skal kærufrestur telja frá þeim degi sem tilkynningin er gefin út.

Neðangreindur leikmaður lék ólöglegur með KFS:
Daníel Scheving Pálsson

Mót: Lengjubikarinn – B deild karla
Leikur: Njarðvík – KFS
Dagsetning: 5. mars 2021

Ástæða: Leikmaður skráður í ÍBV

Í samræmi við ofangreinda reglugerð er KFS sektað um kr. 60.000.- Úrslitum leiksins er breytt í 3–0 Njarðvík í vil.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is