Föstudagur 16. október 2026

Olga Sevcova framlengir til ársins 2025

Knattspyrnukonan Olga Sevcova hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild ÍBV til ársins 2025. Olga hefur verið einn af burðarásum liðsins síðustu ár og leikið gríðarlega vel á leiktíðinni. Hún var í úrvalsliði fyrri hluta tímabilsins.

Olga var þá valin besti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð. Hún hefur alls leikið 58 leiki fyrir ÍBV í öllum keppnum og skorað í þeim 17 mörk.

Olga á fjöldann allan af landsleikjum fyrir Lettland og hefur verið valin knattspyrnukona ársins þar í landi fimm sinnum.

Þessar fréttir eru mikil gleðitíðindi fyrir knattspyrnudeildina, lið ÍBV situr nú í 5. sæti deildarinnar þegar fimm leikir eru eftir.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search