31.08.2020
VARÚÐ HÁLKA!!!
Óhapp varð á fjórða tímanum nú í dag þegar Díselolía sem verið var að dæla á vörubíl lenti á götunni við bensínsöluna Klett á Strandvegi.
Greiðlega gekk að hreinsa upp þá yfirborðsolíu sem var á götunni og sá m.a. sóparabíllinn um að skúra upp óhreinindin.
Svæðið afmarkast að mestu leyti við staðinn frá bensíndælum og niður að sóparabíl(sjá mynd) og getur þetta svæði verið varasamt í einhvern tíma, og þá sérstaklega gangbrautin, ekki síst fyrir reið- og bifhjólafólk sem á leið þar yfir.
Farið því varlega á þessu svæði á næstunni.
Slökkvilið Vestmannaeyja vara við þessu á facebooksíðu sinni.