12.02.2020
Veðurstofa Tíguls fylgist vel með veðrinu og það lítur út fyrir að á föstudaginn verði mjög áhugavert veður ef það gengur eftir, kl 07:00 á að vera 37 metrar á sek á stórhöfða og 2 stiga hiti sem er þá heitast á landinu og mesti vindhraði á landinu, við elskum að vera með allt mest er það ekki ? Eða kannski ekki mesta vind en við ráðum ekki við veðurguðina okkar svo við verðum bara tilbúin að takast á við enn eitt ofsaveðrið, kannski að starfsmaður veðurstofu Tíguls taki veðrið við Hamarskóla um kl 07:30 á föstudagsmorgun og miðli því áfram til foreldra skólana. Við sjáum til hvernig veðurspáin þróast, stundum erum við heppin og veðrið fer framhjá eyjunum okkar.
