Mánudagur 16. nóvember 2026

Öflugasta tundurskeyti sem komið hefur í veiðarfæri íslensks fiskiskips hin síðari ár

18.12.2020

Á facebooksíðu Landhelgisgæslunnar er greint frá því að séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar, með aðstoð áhafnarinnar á varðskipinu Tý, eyddi sprengjuhleðslu úr þýsku tundurskeyti frá seinni heimsstyrjöld úti fyrir Sandgerði laust fyrir klukkan tvö í gær. Tundurskeytið kom kom í veiðarfæri togara sem var að veiðum úti fyrir Garðskaga síðdegis í fyrradag en rúmlega 300 kíló af virku dýnamíti voru í hleðslunni. Áhöfn togarans brást hárrétt við og gerði Landhelgisgæslunni viðvart sem sendi sprengjusérfræðinga um borð í skipið í Sandgerðishöfn í gær.

Tundurskeytið var híft frá togaranum og dregið hálfan annan kílómetra frá höfninni þar sem því var sökkt á 10 metra dýpi. Í dag vann séraðgerðasveitin og áhöfnin á Tý að undirbúningi eyðingarinnar sem var ansi kraftmikil. Tilkomumikill strókur stóð 30 metra upp í loft eftir að skeytið var sprengt. Þetta er eitt öflugasta tundurskeyti sem komið hefur í veiðarfæri íslensks fiskiskips hin síðari ár.

Aðgerðin gekk afar vel og ekki þarf að fjölyrða um hættuna sem getur skapast af tundurskeyti sem þessu sem komið er til ára sinna.

Myndir frá síðu Landhelgisgæslunnar.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search