Ófært er orðið í Landeyjahöfn. Herjólfur III siglir því til Þorlákshafnar, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 10:00 og 17:00 og frá Þorlákshöfn kl. 13:15 og 20:45.
Þeir farþegar sem áttu bókað 09:30 frá Vestmannaeyjum og 10:45 frá Landeyjahöfn hafa verið færðir sjálfkrafa í fyrri ferð Herjólfs III til/frá Þorlákshöfn.
Þeir farþegar sem áttu bókað 17:00 og 20:45 til/frá Landeyjahöfn hafa verið færðir sjálfkrafa til/frá Þorlákshöfn á sömu tímasetningum.
Aðrar ferðir hafa verið felldar niður. Ef farþegar eiga faratæki í Landeyjahöfn, þarf að láta vita af sér í afgreiðslu Herjólfs í Vestmannaeyjum, segir jafnframt í tilkynningunni.

