09.11.2020
Eitrunarmiðstöð Landspítala hafa borist of mörg símtöl undanfarið vegna barna sem komist hafa í nikótínpúða. segir í frétt á vef spítalans þar sem brýnt er fyrir fólki að geyma nikótínpúða þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Bent er á að nikótín er MJÖG eitrað efni, sérstaklega litlum börnum, og lítið magn getur valdið mjög alvarlegri eitrun.
,,Geymið alla nikótínvörur þar sem börn hvorki ná til né sjá, helst í læstum hirslum. Ef einhver verður fyrir eitrun hringið þá í 112 eða Eitrunarmiðstöðina 543 2222 fyrir sérfræðiráðgjöf.“ segir á vef spítalans.