Laugardagur 17. október 2026

Odasia í Vestmannaeyjum hlýtur sjálfbærnistyrk Terra

Vestmannaeyjafyrirtækið Odasia er eitt fjögurra fyrirtækja sem hlutu sjálfbærnistyrk Terra árið 2026. Styrkirnir voru veittir í fyrsta sinn á dögunum og er þeim ætlað að styðja við nýsköpun á sviði umhverfis- og hringrásarlausna.

Odasia þróar hljóðvistarlausnir úr endurunnum textíl og gefur þannig textílúrgangi nýtt og verðmætt hlutverk. Fyrirtækið var valið úr hópi um 70 umsókna sem bárust Terra.

Sex verkefni komust í lokaúrtak

Að lokinni yfirferð og mati á umsóknum voru sex verkefni valin til að kynna hugmyndir sínar fyrir valnefnd Terra. Að lokum voru fjögur verkefni valin til styrkveitingar: Odasia, IceSand, GróBox og Loopable.

Verkefnin eiga það sameiginlegt að leita nýrra leiða til að endurnýta hráefni og draga úr sóun.

IceSand vinnur að því að umbreyta notuðu gleri í sand sem meðal annars má nýta í glompur á íslenskum golfvöllum. GróBox þróar lífbrjótanlegar umbúðir úr sveppamassa sem ætlað er að koma í stað frauðplasts, meðal annars í sjávarútvegi. Loopable vinnur hins vegar að endurvinnslu textíls í nýtt garn sem hægt er að nýta til frekari framleiðslu.

Textílúrgangur fær nýtt hlutverk hjá Odasia

Lausn Odasia snýr að því að nýta endurunninn textíl til framleiðslu á hljóðvistarlausnum. Með því fær textílúrgangur, sem annars gæti fallið úr notkun, nýtt hlutverk og verðmæti.

Markmið Terra með sjálfbærnistyrkjunum er að styðja verkefni sem efla hringrásarhagkerfið, draga úr sóun og stuðla að sjálfbærari framtíð með nýsköpun og framsýnum lausnum.

Kynna framgang verkefnisins í haust

Styrkþegarnir fjórir munu í haust kynna framgang verkefna sinna á stjórnendadegi Terra og verður því spennandi að fylgjast áfram með þróun verkefnis Odasia hér í Vestmannaeyjum.

Gróa Björg Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærni og menningar hjá Terra, afhenti styrkinn ásamt Ernu Björk Häsler, markaðsstjóra Terra.

Heimild: Terra

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search