Miðvikudagur 7. júní 2023

Nýtum kosningarétt okkar í dag og kjósum – kosið í Akóges við Hilmisgötu í Vestmannaeyjum

27.06.2020

Við hvetjum ykkur að nýta kosningarétt ykkar og kjósa ykkar forseta í dag, hvert atkvæði telur.

Kjörstaður í Vestmannaeyjum vegna forsetakosninga er í Akóges, Hilmisgötu 15. Kjörfundur hefst kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00 í kvöld.

Bænum verður skipt þannig í tvær kjördeildir:

Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 6. júní 2020 við Ásaveg til og með Hásteinsvegi auk þeirra sem eru ótilgreindir og þeirra, sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.

Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 6. júní 2020 við Hátún til og með Ægisgötu, auk þeirra, sem búa að Hraunbúðum og húsum er bera bæjarnöfn.

Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini, getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.

Yfirkjörstjórn verður til húsa á kjörstað í Akóges, 2. hæð á kjördegi.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is