Vegna veðurs verður nýjasta tölublaðinu dreift fimmtudag og föstudag. En fyrir þau ykkar sem vilja lesa blaðið þá er það að sjálfsögðu á síðunni okkar. Meðal efnis er flott grein um jólastressið eftir Ragnheiði Guðfinnu, Eyjatónleikar í Hörpu, spurt & svarað með Óla Bjarka Austfjörð en hann er með uppistand 18.desember í Eyjabíó, fáum að heyra hvernig Sigmundur Rúnar Rafnsson undirbýr jólin, uppskrift frá Berglindi Sigmars ásamt hinum ýmsum upplýsingum sem þurfa að komast á framfæri og auglýsingum.
Minnum á að næsta blað er síðasta tölublað Tíguls á árinu og kemur það út 18.desember. Þeir sem vilja auglýsa vörur eða þjónustu, senda jólakveðjur þá er hægt að hafa samband við okkur á tigull@tigull.is eða í síma 481-1161 /856-4250 síðasta lagi fyrir klukkan 13:00 á mánudaginn.