Fimmtudagur 8. október 2026

Nýtt lag frá Foreign Monkeys

Í dag, föstudaginn 12. ágúst, kom út nýtt lag með Foreign Monkeys og nefnist það FEEL GOOD. Lagið er að finna á Spotify og öllum öðrum helstu streymisveitum. Lagið er þriðja smáskífa Foreign Monkeys þetta árið, og er óhætt að segja að hér sé á ferð partýslagari af gamla skólanum í bland við blúsaðan fíling hins íslenska rigningarsumars. Lagið er óformlegt þjóðhátíðarlag Foreign Monkeys og fjallar um það mikla partý sem haldið er í Herjólfsdal ár hvert.
Laginu verður fylgt eftir með myndbandi í anda þeirra sem fylgt hafa fyrri smáskífum, tekin upp í Vestmannaeyjum og mun án efa ná að fanga stemningu lagsins.
Foreign Monkeys koma fram á nokkrum tónleikum á næstunni. Þar ber hæst Rokk í Reykjavík, stórtónleikar sem fara fram í Kaplakrika í Hafnarfirði 17. september nk.
Mynd: Sigríður Unnur Lúðvíksdóttir

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search